Ráðgjöf

Parkinsonsamtökin bjóða einstaklingum með Parkinson og Parkinsonskylda sjúkdóma, sem og aðstandendum þeirra, upp á faglega og persónulega ráðgjöf.

Ráðgjafar veita fræðslu og upplýsingar um sjúkdóminn, næstu skref eftir greiningu og aðstoða við að meta stöðu einstaklingsins og finna viðeigandi stuðning eða þjónustu.

Í ráðgjöf er farið yfir einkenni, meðferð og þau áhrif sem sjúkdómurinn getur haft á daglegt líf. Einnig er hægt að fá leiðbeiningar um aðlögun, orkunýtingu og val á hjálpartækjum þegar við á. Markmið þjónustunnar er að stuðla að öryggi, sjálfstæði og þátttöku í daglegum athöfnum, innan sem utan heimilis.

Ráðgjöf er oft fyrsta skrefið hjá nýgreindum en hún er jafn mikilvæg síðar í ferlinu þegar nýjar spurningar vakna eða aðstæður breytast. Aðstandendur eru einnig hjartanlega velkomnir í viðtal.

Það skiptir ekki máli hvar þið eruð stödd í ferlinu. Við mætum ykkur þar.

Viðtölin eru niðurgreidd en verð fyrir 50 mín. viðtal er 5.000 kr.

Verið hjartanlega velkomin – við tökum vel á móti ykkur.