|
|
|
|
|
|
Hefur þú nýlega greinst með Parkinson og vilt tala við einhvern? Samtökin eru með opið hús alla miðvikudaga frá 17:00-19:00, Hátúni 10b,9.hæð,þar sem nýgreindir og aðstandendur þeirra eru sérstaklega velkomnir. Jafningjastuðningsfundir eru á mánudögum, aðra hvora viku og finnast upplýsingar varðandi þá fundi í viðburðadagatalinu undir flokknum Félagsstarf. Símatímar eru frá 11:00-15:00 alla virka daga og er þar t.d. hægt að panta viðtal við hvort heldur er aðstandanda eða Parkinsongreindann aðila. Mikið fræðsluefni hefur verið útgefið af samtökunum og liggur það frammi á öllum fundum. Stuðningur frá Parkinsonssamtökunum er ætlaður öllum þeim sem á þurfa að halda, EKKI er nauðsynlegt að vera félagsmaður í samtökunum.
Ef þú hefur áhuga á að stuðningshópur verði stofnaður í þinni sveit, sendu þá póst til okkar á parkinson@parkinson.is og við verðum þér innan handar. |