Ný vefsíða Sjúkratrygginga Íslands   Prenta  Senda 

Ný vefsíða Sjúkratrygginga Íslands www.sjukra.is var tekin í notkun þriðjudaginn 16. febrúar sl. Vefurinn mun taka við hlutverki tr.is sem upplýsingaveita um réttindi til sjúkratrygginga. Markmiðið er einnig að vefurinn þjóni betur heilbrigðisstarfsfólki og stofnunum heldur en áður hefur verið gert.


Uppbygging vefsins
Í grunninn er vefurinn umfangsmikil upplýsingaveita um sjúkratryggingar en gefur einnig kost á fyrstu skrefum gagnvirkrar þjónustu. Markhópar vefsins er allur almenningur(sem skipta má upp í smærri hópa t.d. eldri borgarar, öryrkjar, aðstandendur, barnafólk og aðrir sem nota mikið heilbrigðisþjónustu) heilbrigðisstarfsfólk/stofnanir, birgjar og starfsmenn stjórnsýslunnar.
Vefurinn er þannig uppbyggður að dregnar eru fram meginstoðir starfsemi SÍ. Undir heitinu „Heilbrigðisþjónusta“ má finna upplýsingar um niðurgreidda heilbrigðisþjónusta. „Slys“ inniheldur upplýsingar um slysa- og sjúklingatryggingu. „Lyf og hjálpartæki“ gera síðan réttindum til þeirra málaflokka góð skil.  Auk þessarra aðalflokka er bætt við praktískum upplýsingum til heilbrigðisstarfsfólks undir „Heilbrigðisstarfsfólk“ en síðan má finna praktískar upplýsingar um stofnuna undir „Um okkur“.  
Vefurinn vísar í gagnvirka þjónustu SÍ „Þjónustugáttir SÍ“ sem komið er af stað í samvinnu við skattur.is og Onesystems. Í framtíðinni er ætlunin að vefurinn þjóni enn stærra hlutverki í gagnasamskiptum stofnunarinnar við almenning og heilbrigðisstarfsfólk.
Fyrir miðri forsíðu eru dregnir fram allra helstu þjónustuþættir stofnunarinnar, eins og afsláttarkort, Evrópskt sjúkratryggingakort, upplýsingar um fjárhæðir og gjaldskrár og eyðublöð svo eitthvað sé nefnt. Fréttavirkni er á sínum stað á forsíðu er sýnir hvað er helst á döfinni er varðar sjúkratryggingaumhverfið. Góð skírskotun er í vef TR svo áfram verði góð tenging í upplýsingagjöf milli stofnananna. Lagt er upp með góðum flýtileiðum þar sem undirflokkar endurspegla vefinn nánast í heild sinni neðst á síðunni. 
Í vefstefnu stofnunarinnar kemur fram að áætlað er að ná 3. stigs vottunarforgangi frá Sjá. Vefurinn mun á næstunni ná 1. og 2. stigs vottun. Sjá vottunarskilgreiningu Sjá


« Til baka
Hafa samband Um Parkinsonveiki Fréttir Minningarkort
| PSÍ-Parkinsonssamtökin á Íslandi | kt.461289-1779 | Hátúni 10b, 9.hæð. | 105 Reykjavík | parkinson@parkinson.is | 552-4440 | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun